-Saga Furu ehf.-
Fura ehf. hóf starfsemi sína í Garðabæ árið 1981 og var meginhlutverkið í upphafi að sinna byggingaverktöku af ýmsum toga. Frá árinu 1993 hafa orðið þau umskipti í rekstrinum að fyrirtækið hefur alfarið tekið að sér að stjórna umfangsmikilli málmendurvinnslu sem staðsett er í Kapelluhrauni í Hafnarfirði.
Vinnsluferli
Helstu hráefnisbirgjar Furu ehf. eru Sorpa, Íslenska álfélagið, Sorpeyðingarstöð Suðurnesja ásamt ýmsum sveitarfélögum víða um land. Þess má geta að um 20% af brotajárni kemur frá ónýtum bílum, en einnig er töluvert um úrelda báta og gömul heimilistæki. Fyrirtækið sér jafnframt um móttöku á ónýtum rafgeymum og eru þeir sendir í endurvinnslu á Englandi. Allt efni kemur í gámum inn á svæðið, þar sem það er vigtað og skráð. Síðan er því sturtað á sérstakt vinnsluplan þar sem starfsmenn flokka efnistegundir. Áðurnefnd hakkavél hakkar niður allt brotajárn og flokkar í ákveðinn salla sem síðan er fluttur út til Spánar sem hráefni fyrir stálverksmiðjur þar í landi. Á fyrsta starfsári Furu ehf. var tekið við alls 13.000 tonnum af brotajárni, en árið 2000 var sú tala komin upp í 28.000 tonn og hefur haldist þar um bil síðan.
Starfsmenn
Haraldur Þór Ólason er enn í dag framkvæmdastjóri Furu ehf. Starfsmannafjöldinn er að jafnaði um 30 manns